Glimmer og aska.
Tóm bjórflaska
Drottningadraumórar.
Dansandi taumlausar.
Grámyglaðir lokkar
Götóttir sokkar.
Þið eruð föst í svörtum hring
Spegilmynd og sjónhverfing.
Baða mig í gleri
Enginn sér mig.
Í herbergi fullu
Af handklæðum og lökum
Af mínum eigin sökum
Og heilans ragnarrökum.
Gefðu fiskunum að borða.
Það ætti að flengja,
Stelpur eins og þig.
Ekki koma nær.
Mig langar bara að leika
ég er þreytt á því að reika
Og leita að morgundeginum
Sem aldrei kemur.
Ekki koma nær.
Þið sitjið kannski á fremsta bekk
En þið fáið ekki að snerta.
Ekki koma nær