Þú hrekkir mig og blekkir
Drekkir mér og ég kafna,
það er svo langt til næstu hafna
Og ég hef ekki löngun til að synda.
Svo ég held áfram að binda mig við öldurnar
þar sem ég flýt og fylgi veðrinu.
Nú er logn og ég lygni aftur
Kraftlausum augum
Sem að hanga yfir bólgnum baugum
þar sem ég drekkti mér í gær
í drykkjum sem drepa
Og leka svo niður
í farveg dansspora
Sem stjórnast af lauslátum líflátum.