Nú er tími til að kveikja elda
Finna logann inn í mér
Og far'á fætur, enga leti lengur
Finna nýjan stað í geim
Og við leggjum nú af stað
Förum í sumarfrí
Þar sem eru bara örfá ský
Förum í sólina
Og finnum ströndina
Og kannski til útlanda
Í alla skemmtigarðana
Förum til Kanarí
Og kannski'í Tívolí?
Leyfum foreldrum að húka heima
Og horfa á'okkur af skjá
Við þurfum bara svefnpoka og sykurpúða
Og finna sólina - ó já!
Núna leggjum við af stað
Förum í sumarfrí
Þar sem eru bara örfá ský
Förum í sólina
Og finnum ströndina
Og kannski til útlanda
Í alla skemmtigarðana
Förum til Kanarí
Og kannski'í Tívolí?
Hér er engin innipúkaveiki
Hér er allt sem mér er kært
Og förum nú í nokkra létta leiki
Komdu með því nú er fært...
Núna leggjum við af stað...
Förum í sumarfrí
Þar sem eru bara örfá ský
Förum í sólina
Og finnum ströndina
Förum úr húsunum
Og heilsum góðum nágrönnum
Dönsum á götunum
Og gleymum leiðindum
O ó ó ó
Pælum i Pakistan
Og líka Langt-í-burt-istan
En sleppum Djibouti
Það er ekkert vit í því