Heyrðu rödd sem að hljómar lágt
Hvísl hins þjáða sem á svo bágt
Vill ei trufla né troða sér
Til einskis ætlast hann af þér
Gefðu gjöf sem sérhver á
Gefðu tíma sem hann þarf að fá
Augnablik getur öllu breytt
Armæðu og þreytu eytt
Handtakið þétt til hjartans nær
Hlýhugur yljar þeim sem gefur og fær
Hann skal finna að hann vininn á
Hafi stuðning sem treysta má
Ósögð orðin segja allt
Verma hjarta sem áður var kalt
Gefðu gjöf