Saman að morgni við vöknum
Vonglöð um hamingjudag
Af veraldarauð einskis söknum
Þú hefur á mér gott lag
Margt hefur á dagana drifið
Andstreymi sem gleðin tær og hrein
Og erfiða hjalla höfum klifið
Tvö saman sem ein
Dagur að kvöldi er kominn
Kyrrðin hún umvefur mig
Hamingja okkar á hug minn
Ætíð hugsandi um þig
Að vera með þér er gaman
Fyrir mér ertu sem ung stelpa í sjón
Og vonandi verðum við saman
Sem ástfangin öldruð hjón