Það eru dimm él í dag
Dapur raula mitt lag
Og í huganum fer
Of langt burtu frá þér
Þú ert vinurinn minn
Engan betri ég finn
Má ég kalla á þig
Komdu og náðu í mig
Ég heyri þitt kall, þér vil ég svara
Þungt er fargið sem mara
Mín gleði, mín von og vænstu laun
Er að vera þinn vinur í raun
Þegar loks rofar til
Og ég finn hvað ég vil
Vísar vinur mér leið
Útúr þjáningu og neyð
Til þín og lífsins ég geng
Styðst við vináttustreng
Miðar skref fyrir skref
Mínar þakkir ég gef
Ég heyri þitt kall, þér vil ég svara
Þungt er fargið sem mara
Mín gleði, mín von og vænstu laun
Er að vera þinn vinur í raun